Fara í aðalefni

Verslun og þjónusta

Traustur samstarfsaðili fyrirtækja á neytendamarkaði

🟢 Bílasölur
🟢 Ferðaþjónusta
🟢 Landbúnaður
🟢 Smásölur, heildsölur og dreifingaraðilar
🟢 Sérfræðiþjónusta

Ör þróun á neytendamarkaði

Neytendamarkaðurinn tekur stöðugum breytingum og kauphegðun og -mynstur neytenda hefur tekið stakkaskiptum síðustu ár. Netverslun og hraðar tækniframfarir hafa sem dæmi skapað nýjar væntingar um hraða og þægindi verslunar og þjónustu. Þá hafa kröfur um gagnsæi, sjálfbærni og rekjanleika í virðiskeðjunni aukist til muna meðal hins almenna neytanda.

Íslensk fyrirtæki standa jafnframt frammi fyrir sértækum áskorunum. Samkeppni við stóra alþjóðlega aðila hefur aukist á sama tíma og hár rekstrarkostnaður, smæð íslenska markaðarins og óvissa í alþjóðlegum aðfangakeðjum setja rekstrinum skorður. 

Deloitte aðstoðar fyrirtæki á neytendamarkaði að rýna í reksturinn; finna tækifæri til aukinnar skilvirkni, lækka kostnað, bæta þjónustu og auka virði til bæði neytenda og haghafa.

Alþjóðlegur atvinnugreinahópur

Innan Deloitte er alþjóðlegur atvinnugreinahópur sem sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir fyrirtæki innan verslunar og þjónustu. Þessi hópur styður við okkar starfsfólk, tryggir nauðsynlega þjálfun og miðlar upplýsingum um það sem er að eiga sér stað í greininni.

Þátttaka í þessum hópi gerir okkur kleift að fylgjast vel með öllum breytingum sem eiga sér stað á lögum, reglugerðum og stöðlum. Þetta leiðir til gagnlegra og upplýsandi umræðu við samstarfsfélaga úti í heimi um áhrif slíkra breytinga og fyrir vikið, leiðir til þess að við getum þjónustað viðskiptavini okkar enn betur.

 

Deloitte á Íslandi hefur greiðan aðgang að og vinnur með sérfræðingum í öðrum aðildarfélögum og á mikil þekkingaröflun sér stað meðal félaganna.

Tengslanet okkar veitir viðskiptavinum því aðgang að sérfræðiþekkingu sem á sér vart hliðstæðu.

Sérhæfð þjónusta

Við veitum heildstæða þjónustu og ráðgjöf sem tekur mið af þínum rekstrarmarkmiðum.

Innsýn 

Við þekkjum rekstrar- og lagaumhverfið og fylgjumst náið með þróun greinarinnar, bæði hér á landi og erlendis.

Alþjóðlegt bakland

Við höfum aðgengi að 470.000 sérfræðingum víðsvegar um heiminn.

Faglegt efni

Deloitte birtir reglulega greinar, rannsóknir, skýrslur og annað faglegt efni sem veitir innsýn í þróun viðskiptaumhverfis, atvinnulífs og efnahagsmála. Efnið byggir á sérfræðiþekkingu ráðgjafa Deloitte hér á landi, og um allan heim, og tekur mið af meðal annars nýjustu stefnum, straumum og lagabreytingum, auk tækifæra og áskorana sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir.