Rétt eins og í hópíþróttum, þurfa réttu leikkerfin að vera til staðar til að sigrar vinnist og allt gangi upp. Og tæknin þarf að standast nútímakröfur.
Fjárhagskerfi þurfa að geta stækkað og breyst með rekstrinum og verið kerfið sem stjórnendur stóla á fyrir betri innsýn, hraðari ákvörðunartöku og aukna skilvirkni í rekstrinum.
Við höfum áralanga reynslu af innleiðingu allra helstu fjárhagskerfa sem eru í notkun á Íslandi (Business Central, Microsoft AX / D365Finance, Oracle og SAP).
Sérfræðiþekking okkar:
Við höfum einnig unnið mörg verkefni tengd óháðri verkefnastýringu, þar sem markmiðið er að tryggja hagsmuni viðskiptavina við hinar ýmsu innleiðingar:
Okkar sérstaða liggur í þeirri breiðu sérfræðiþekkingu sem Deloitte býr yfir, þvert á svið og landamæri. Ráðgjafar okkar hafa ekki aðeins mikla reynslu af tæknilegri hlið innleiðingarinnar, heldur styðjumst við einnig við innlenda og alþjóðlega þekkingu Deloitte á innviðum og rekstri fyrirtækja. Þannig gefur breidd sérfæðinga Deloitte á sviði endurskoðunar, bókhalds, fjármálaráðgjafar og skatta- og lögfræðitengdra mála okkur sérstöðu í þeim áskorunum sem upp geta komið við innleiðingu eða uppfærslu fjárhagskerfis.
Við einfaldlega þekkjum og skiljum þarfir ykkar frá öllum hliðum.