Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 40 sérfræðingar við tækniráðgjöf. Hópurinn skiptist niður á fimm meginþjónustulínur; stafræn stefnumótun, gagna- og gervigreind, hugbúnaðarþróun, fjárhagskerfi og rekstur.
Starf í tækniráðgjöf er afar fjölbreytt og síbreytilegt — þar sem fáir dagar eru eins.
Mismunandi er hvort vinnudagurinn fari fram hjá viðskiptavinum okkar eða í höfuðstöðvum Deloitte á Dalvegi. Hvort heldur sem er, þá vinnur hópurinn okkar þétt saman og deilir þekkingu, reynslu og hugmyndum milli teyma.
Ráðgjafar okkar koma úr fjölbreyttum áttum. Hjá okkur starfa einstaklingar með bakgrunn í tölvunarfræði, verkfræði og viðskiptafræði m.a. — og sumir hverjir luma meira að segja á gráðu í bókmenntum.
Þeir eiga það sameiginlegt að vera tæknilega þenkjandi og lausnamiðaðir en á sama tíma eru þetta ólíkir einstaklingar með mismunandi reynslu, áhugasvið og styrkleika. Það er einmitt sú blanda sem gerir teymið okkar öflugt.
Heimur tækninnar hreyfist hratt og er í stöðugri þróun. Ráðgjafar okkar eru því snillingar í að hlaupa hratt með viðskiptavinum okkar og eru fljótir að tileinka sér nýja hluti.
sérfræðingar
hópar
ára meðalaldur