🟢 Álver
🟢 Byggingariðnaður
🟢 Framleiðslufyrirtæki
🟢 Orkufyrirtæki
Íslenskt samfélag byggir að stórum hluta á öflugri orkuvinnslu, ábyrgri nýtingu auðlinda og samkeppnishæfum iðnaði. Þessar greinar hafa um langt skeið verið drifkraftur verðmætasköpunar og skipta lykilmáli fyrir atvinnulíf og og efnahagsþróun. Til að tryggja áframhaldandi verðmætasköpun þurfa fyrirtæki að samræma rekstrarhagkvæmni, nýsköpun og sjálfbærni.
Deloitte styður fyrirtæki á sviði orku, auðlinda og iðnaðar með ráðgjöf sem byggir á þverfaglegri sérfræðiþekkingu og alþjóðlegri reynslu. Við vinnum með viðskiptavinum að því að efla rekstur, styðja við stefnumótandi ákvarðanir og skapa sjálfbær verðmæti til framtíðar.
Alþjóðlegur atvinnugreinahópur
Innan Deloitte er alþjóðlegur atvinnugreinahópur sem sérhæfir sig í þjónustu við orku-, auðlinda- og iðnanarfyrirtæki. Þessi hópur styður við okkar starfsfólk, tryggir nauðsynlega þjálfun og miðlar upplýsingum um það sem er að eiga sér stað í greininni.
Þátttaka í þessum hópi gerir okkur kleift að fylgjast vel með öllum breytingum sem eiga sér stað á lögum, reglugerðum og stöðlum. Þetta leiðir til gagnlegra og upplýsandi umræðu við samstarfsfélaga úti í heimi um áhrif slíkra breytinga og fyrir vikið, leiðir til þess að við getum þjónustað viðskiptavini okkar enn betur.
Sérhæfð þjónusta
Við veitum heildstæða þjónustu og ráðgjöf sem tekur mið af þínum rekstrarmarkmiðum.
Innsýn
Við þekkjum rekstrar- og lagaumhverfið og fylgjumst náið með þróun greinarinnar, bæði hér á landi og erlendis.
Alþjóðlegt bakland
Við höfum aðgengi að 470.000 sérfræðingum víðsvegar um heiminn.