Pétur Hansson
Meðeigandi
Pétur hefur starfað hjá Deloitte í tvo áratugi, eða allt frá árinu 2006. Hann er einn af meðeigendum félagsins auk þess að sinna hlutverki áhættu- og gæðastjóra fyrir endurskoðun.
🟢 Hvenær hófst þú störf hjá Deloitte?
Ég byrjaði hjá Deloitte árið 2006 svo ég hef verið hér í 20 ár. Það er samt vert að taka það fram að þó það sé sami vinnuveitandi á ferilskránni minni öll þessi ár, þá hef ég átt fjölbreyttan feril og verið í mörgum hlutverkum yfir þennan tíma. Ég upplifi það alls ekki að ég sé búinn að sinna sama starfinu í 20 ár, þvert á móti.
🟢 Hver eru þín helstu verkefni?
Ég ver hluta ársins í hlutverki gæða- og áhættustjóra, þá helst fyrir endurskoðunarsvið þar sem ég aðstoða með allt sem viðkemur, eins og nafnið gefur til kynna, áhættu- og gæðamálum. Stór hluti af þessari vinnu felur til að mynda í sér samstarf og samskipti við önnur Deloitte aðildarfélög, einkum innan Norðurlandanna og Evrópu. Þessu til viðbótar starfa ég svo auðvitað líka sem endurskoðandi og þjónusta fjölda viðskiptavina, allt frá félögum sem rétt skríða yfir endurskoðendaskyldu og yfir í stór, skráð félög. Að mínu mati helst þetta tvennt mjög vel í hendur. Með því að vera bæði í innri vinnu og þjónusta viðskiptavini finnst mér ég sinna báðum hlutverkum miklu betur.
🟢 Stefndir þú alltaf á að verða endurskoðandi?
Nei, ég vissi reyndar aldrei að ég ætlaði að verða endurskoðandi. Ég byrjaði í stærðfræði í Háskóla Íslands, tók síðan smá verkfræði en tók svo pásu frá námi. Ég fór síðan í svokallað áhugasviðapróf sem leiddi mig í viðskiptafræði. Í viðskiptafræðinni valdi ég alltaf þau fög þar sem ekki þurfti að skrifa ritgerðir, svo með því að velja mig frá þeim þá valdi ég mig óvart í áttina að endurskoðuninni.
Endurskoðendastarfið reyndist svo bara vera rosalega skemmtilegt og fjölbreytt, það er alltaf eitthvað nýtt. Ég er að gera allt annað í vinnunni í dag heldur en fyrir 10 árum síðan og jafnvel bara fyrir fimm árum síðan. Hvert ár kemur með nýja áskorun, ný verkefni, ný verkfæri, nýja staðla, nýja aðferðafræði og alls konar hluti sem við þurfum að fylgja eftir. Starf endurskoðandans er í stöðugri þróun og krefst þess að við séum opin fyrir því að vaxa og hlaupa samhliða þeirri þróun.
🟢 Ertu með einhver skilaboð til þeirra sem eru að íhuga starf í endurskoðun hjá Deloitte?
Að vera með opin hug og hafa gaman að þessu. Endurskoðun er ekki starf sem þú masterar á einu ári og gengur svo að því vísu. Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast í faginu og ef maður ber sig eftir því, þá er alltaf eitthvað nýtt sem hægt er að læra. Það er trú sem ég hafði strax frá fyrsta degi og sú trú hefur ekki verið tekin af mér.
Þetta getur verið yfirþyrmandi til að byrja með og oft á tíðum krefjandi, en þetta er skemmtilegt og rosalega fjölbreytt. Og hvort sem þú ert hér enn eftir 20 ár eða finnur þig á annarri vegferð síðar meir, þá þori ég að fullyrða það að það er enginn sem hefur unnið hjá Deloitte, hvort sem það er til skemmri eða lengri tíma, sem er ekki betri einstaklingur fyrir vikið.