Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 frábærir einstaklingar á starfsstöðvum okkar víðsvegar um landið. Við erum eins ólík og við erum mörg en saman vinnum við að því að hafa þýðingarmikil áhrif fyrir hvort annað, viðskiptavini og samfélagið allt.
Hvað gerir lífið hjá Deloitte svo einstakt? Menning okkar byggir á fjölbreytileika, samvinnu, metnaði og jöfnum tækifærum. Við leggjum okkur fram við að skapa umhverfi þar sem öll geta verið þau sjálf og blómstrað á sinn hátt.
Hjá Deloitte starfar landsliðsfólk, tónlistarséní, ömmur og afar, golfarar, bókaormar, göngugarpar, kaffiunnendur, sjósundskempur, blóðgjafar, hundaeigendur og svo mætti lengi telja!
sérfræðingar
fjölbreyttur hópur sem starfar á sex starfsstöðvum um landið
meðalaldur
hér starfa ungir sem aldnir og er aldursbilið mjög breitt
starfsánægja
hér líður okkur vel og starfsánægja mælist 8,6 af 10 í nýjustu könnun
Það er sagt að mynd segi meira en 1.000 orð - hvað þá með myndband?
Hér getur þú fengið innlit í aðstöðuna í höfuðstöðvum okkar að Dalvegi 30; vinnustað þar sem fólk fær að vaxa og hugmyndir fá að blómstra.
Komdu í stafræna heimsókn!