Fara í aðalefni

Fólkið okkar

Hjá Deloitte starfar alls konar fólk um allan heim - enda finnst okkur fjölbreytileiki sérlega skemmtilegur. Við erum eins ólík og við erum mörg en saman vinnum við að því að hafa þýðingarmikil áhrif fyrir hvort annað, viðskiptavini og samfélagið allt.

Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 frábærir einstaklingar á starfsstöðvum okkar víðsvegar um landið. Við erum eins ólík og við erum mörg en saman vinnum við að því að hafa þýðingarmikil áhrif fyrir hvort annað, viðskiptavini og samfélagið allt.

Á hverju ári ráðum við töluvert af fólki sem er að klára eða hefur nýlokið námi. Sumir koma til að ná sér í góða reynslu og fara héðan enn öflugri en þegar þeir komu. Aðrir þróa með sér svo sterkt Deloitte-hjarta að þeir vilja hvergi annars staðar vinna.