If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
🟢 Bankar og sparisjóðir
🟢 Fjármálamarkaðir
🟢 Tryggingafélög
🟢 Sjóðir
🟢 Fasteignafélög
Fjármálastarfsemi er ein grunnstoð íslenska hagkerfisins. Fjármálafyrirtæki starfa í síbreytilegu umhverfi með miklum sveiflum í efnahagsmálum, örri þróun á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og flóknu regluverki.
Með öflugu alþjóðlegu tengslaneti og mikilli þekkingu á íslenskum markaði veitir Deloitte fjármálafyrirtækjum heildstæða ráðgjöf, allt frá stefnumótun og áhættustýringu, til netöryggis og stafrænna umbreytinga.
Alþjóðlegur atvinnugreinahópur
Innan Deloitte er alþjóðlegur atvinnugreinahópur sem sérhæfir sig í þjónustu við fjármálafyrirtæki. Þessi hópur styður við okkar starfsfólk, tryggir nauðsynlega þjálfun og miðlar upplýsingum um það sem er að eiga sér stað í greininni.
Þátttaka í þessum hópi gerir okkur kleift að fylgjast vel með öllum breytingum sem eiga sér stað á lögum, reglugerðum og stöðlum. Þetta leiðir til gagnlegra og upplýsandi umræðu við samstarfsfélaga úti í heimi um áhrif slíkra breytinga og fyrir vikið, leiðir til þess að við getum þjónustað viðskiptavini okkar enn betur.
Sérhæfð þjónusta
Við veitum heildstæða þjónustu og ráðgjöf sem tekur mið af þínum rekstrarmarkmiðum.
Innsýn
Við þekkjum rekstrar- og lagaumhverfið og fylgjumst náið með þróun greinarinnar, bæði hér á landi og erlendis.
Alþjóðlegt bakland
Við höfum aðgengi að 470.000 sérfræðingum víðsvegar um heiminn.