🟢 Sveitarfélög
🟢 Ráðuneyti
🟢 Félagasamtök
🟢 Almannaheillafélög
🟢 Menntastofnanir
🟢 Aðrar opinberar stofnanir
Opinber grunnþjónusta hefur þróast og breyst á undanförnum árum. Auknar væntingar um skilvirka og aðgengilega þjónustu, ör þróun tækninnar og auknar kröfur um gagnsæi og ábyrga meðferð opinbers fjár kalla á nýjar lausnir og markvissa forgangsröðun.
Stafræn umbreyting, gervigreind og aukin nýting gagna skapa tækifæri til að bæta þjónustu, einfalda ferla og styðja við betri ákvarðanatöku. Á sama tíma þurfa opinberir aðilar að takast á við áskoranir á borð við netöryggi og persónuvernd, síbreytilegt laga- og regluverk, takmarkað fjármagn og samkeppni um sérhæft starfsfólk.
Deloitte vinnur með ráðuneytum, stofnunum og sveitarfélögum að fjölbreyttum verkefnum sem styðja við umbætur í opinberri þjónustu, svo sem á sviði fjármála, sjálfbærni, áhættustýringar og tæknilausna.
Alþjóðlegur atvinnugreinahópur
Innan Deloitte er alþjóðlegur atvinnugreinahópur sem sérhæfir sig í þjónustu við opinbera aðila. Þessi hópur styður við okkar starfsfólk, tryggir nauðsynlega þjálfun og miðlar upplýsingum um það sem er að eiga sér stað í greininni.
Þátttaka í þessum hópi gerir okkur kleift að fylgjast vel með öllum breytingum sem eiga sér stað á lögum, reglugerðum og stöðlum. Þetta leiðir til gagnlegra og upplýsandi umræðu við samstarfsfélaga úti í heimi um áhrif slíkra breytinga og fyrir vikið, leiðir til þess að við getum þjónustað viðskiptavini okkar enn betur.
Sérhæfð þjónusta
Við veitum heildstæða þjónustu og ráðgjöf sem tekur mið af þínum rekstrarmarkmiðum.
Innsýn
Við þekkjum rekstrar- og lagaumhverfið og fylgjumst náið með þróun greinarinnar, bæði hér á landi og erlendis.
Alþjóðlegt bakland
Við höfum aðgengi að 470.000 sérfræðingum víðsvegar um heiminn.