Fara í aðalefni

Sjávarútvegur

Traustur samstarfsaðili íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja

🟢 Fiskeldi
🟢 Útgerðir
🟢 Vinnslustöðar

Þekking sem skapar verðmæti

Sjávarútvegsfyrirtæki starfa í umhverfi þar sem alþjóðleg samkeppni, auknar kröfur um sjálfbærni, tækniframfarir og breytt regluverk hafa sífellt meiri áhrif á reksturinn. 

Við veitum fyrirtækjum um alla virðiskeðju sjávarútvegs sérhæfða ráðgjöf, endurskoðun og aðra faglega þjónustu sem tekur mið af sérstöðu greinarinnar. Með reynslu af samstarfi við fyrirtæki af ólíkri stærð og sérfræðiþekkingu á rekstrar-, fjárhags- og regluverksumhverfi sjávarútvegs leggjum við áherslu á að vera traustur samstarfsaðili sem styður við framþróun, nýsköpun og sjálfbæran vöxt.

Sjávarútvegsdagurinn og -gagnagrunnur Deloitte

Fastur liður í viðburðahaldi Deloitte er hinn árlegi Sjávarútvegsdagur sem haldinn er í samstarfi við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Samtök atvinnulífsins (SA) og fram fer á haustmánuðum.

Á þessum viðburði höfum við fjallað um málefni sem eru efst á baugi innan greinarinnar hverju sinni og fengið framsögu frá stjórnendum sjávarútvegsfyrirtækja.

Þá hefur Deloitte farið yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og fiskeldis ár hvert, en við höfum í fjöldamörg ár haldið úti gagnagrunni um rekstur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og bættum nýlega við grunni um rekstur fiskeldis hér á landi.

Sérhæfð þjónusta

Við veitum heildstæða þjónustu og ráðgjöf sem tekur mið af þínum rekstrarmarkmiðum.

Innsýn 

Við þekkjum rekstrar- og lagaumhverfið og fylgjumst náið með þróun greinarinnar, bæði hér á landi og erlendis.

Alþjóðlegt bakland

Við höfum aðgengi að 470.000 sérfræðingum víðsvegar um heiminn.

Faglegt efni

Deloitte birtir reglulega greinar, rannsóknir, skýrslur og annað faglegt efni sem veitir innsýn í þróun viðskiptaumhverfis, atvinnulífs og efnahagsmála. Efnið byggir á sérfræðiþekkingu ráðgjafa Deloitte hér á landi, og um allan heim, og tekur mið af meðal annars nýjustu stefnum, straumum og lagabreytingum, auk tækifæra og áskorana sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir.