If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Fyrirtæki leggja oft mikinn tíma og fjármagn í innleiðingu nýrra upplýsingakerfa með það að markmiði að einfalda verklag, auka sjálfvirkni og bæta yfirsýn. En hvað gerist þegar innleiðingunni lýkur, daglegur rekstur kemst í fastar skorður og væntur ávinningur lætur enn á sér standa?
Á þeim 18 árum sem ég hef starfað við Navision og síðar Microsoft Dynamics 365 Business Central hef ég ítrekað séð fyrirtæki standa frammi fyrir þessari áskorun. Samt er tilfinningin oft sú að við sjáum ekki þann ávinning sem við bjuggumst við eftir innleiðingu og að það sé hægt að fá meira út úr kerfinu.
Lausnin felst ekki endilega í nýjum kerfum, sérlausnum eða flókinni tækni. Oft liggja stærstu tækifærin í því að skoða þrjá grunnþætti: notendur, ferla og tækni, í þessari röð.
Innleiðingin er aðeins upphafið
Þegar fyrirtæki ákveða að innleiða Business Central er það yfirleitt vegna þess að þau sjá fyrir sér skýran ávinning. Markmiðið getur verið að draga úr handvirkri vinnu, bæta upplýsingaflæði eða skapa betri forsendur fyrir ákvarðanatöku.
Innleiðingarferlið getur hins vegar verið krefjandi. Það þarf að flytja söguleg stofngögn, skilgreina nýja ferla, þjálfa starfsfólk og aðlaga starfsemina að breyttu umhverfi.
Þar er hættan sú að fyrirtæki stoppi. Kerfið er komið í loftið en fólk er enn að flytja gögn á milli Excel-skjala, senda sömu upplýsingar áfram í tölvupósti eða vinna verkefni handvirkt sem kerfið getur í raun séð um.
Þess vegna er mikilvægt að líta ekki á gangsetningu kerfisins sem endapunkt heldur upphafið að stöðugum umbótum við rekstur á Business Central.
Byrjum á notendum, ekki tækninni
Þegar rætt er um að auka skilvirkni í Business Central beinist athyglin gjarnan að sjálfvirkni og nýjum tæknilausnum. Mín reynsla er hins vegar sú að fyrsti staðurinn til að leita tækifæra sé hjá notendunum sjálfum.
Þekkir starfsfólkið þá möguleika sem kerfið býður upp á? Hefur það fengið viðeigandi þjálfun? Eru sömu mistökin að endurtaka sig?
Eitt dæmi sem mér er sérstaklega minnisstætt kemur úr fyrra starfi mínu við tollafgreiðslu í Navision. Þar vann fjögurra manna teymi sem gat tollafgreitt um 960 tollskýrslur á dag. Við fórum markvisst í það að einfalda notendaviðmótið í Navision með því að fela óþarfa reiti og raða upplýsingum í þá röð sem hentaði verkefnunum. Samhliða því lögðum við áherslu á að starfsfólkið lærði að nota flýtilykla í stað þess að treysta stöðugt á músina.
Afköst teymisins jukust um 67% og fóru úr 960 skýrslum á dag í um 1.600.
Oft þarf ekki nýja virkni. Stundum þarf bara að hjálpa fólki að nýta það sem er þegar til staðar.
Góðir ferlar eru forsenda skilvirkni
Þótt starfsfólk hafi góða þekkingu á kerfinu verður árangurinn takmarkaður ef ferlarnir eru óskýrir, flóknir eða úreltir.
Í mörgum fyrirtækjum hafa verkferlar þróast yfir langan tíma án þess að nokkur hafi staldrað við og spurt hvers vegna hlutirnir séu gerðir með tilteknum hætti.
Þegar ég fer yfir ferla með fyrirtækjum finnst mér gagnlegt að byrja á einföldum spurningum:
Mikilvægt er einnig að ferlar séu skrásettir og að ábyrgð á þeim sé skýr. Fjármálastjóri getur til dæmis borið ábyrgð á heildarfjárhagsferlinu á meðan einstakir starfsmenn bera ábyrgð á undirferlum, svo sem viðskiptakröfum eða viðskiptaskuldum.
Ferlar sem voru skilvirkir fyrir tveimur árum eru ekki endilega besta leiðin til að vinna í dag.
Tæknin lagar ekki óskilvirka ferla. En þegar góðir ferlar eru til staðar getur tæknin gert þá hraðari, öruggari og skilvirkari.
Erum við að nýta það sem við höfum nú þegar?
Business Central er mun meira en hefðbundið fjárhagskerfi. Lausnin nær meðal annars til sölu, innkaupa, birgðastýringar, verkbókhalds og fjölbreyttrar sjálfvirkni. Samt sé ég reglulega fyrirtæki sem nýta aðeins hluta þeirrar virkni sem stendur þeim til boða.
Sem dæmi má nefna víddir sem gera fyrirtækjum kleift að greina fjárhagsupplýsingar eftir deildum, kostnaðarstöðvum eða öðrum þáttum án þess að flækja bókhaldslykla. Einnig er hægt að nýta sjálfvirkar frestanir til að dreifa kostnaði eða tekjum yfir tímabil, eignakerfi til afskrifta og notendaverkefni til að halda utan um reglubundnar aðgerðir eins og mánaðaruppgjör.
Góður upphafspunktur getur verið að taka markvisst út hvernig kerfið er uppsett, hvaða virkni er þegar nýtt og hvar tækifæri liggja til umbóta.
Sjálfvirkni og gervigreind – en í réttri röð
Sjálfvirkni og gervigreind opna sífellt fleiri möguleika í Business Central. Með verkfærum á borð við Power Automate er hægt að sjálfvirknivæða endurtekin verkefni og draga verulega úr handvirkri vinnu.
Ég hef séð hvernig hægt er að breyta daglegri úrvinnslu skilapantana úr tveggja og hálfs klukkustundar handvirku ferli í um 20 mínútna yfirferð með aðstoð Power Automate.
Ég er ótrúlega spenntur fyrir sjálfvirkni og gervigreind en það þýðir lítið að bæta gervigreind ofan á feril sem er óskýr eða illa uppsettur.
Það þarf að vera skýrt hvaðan gögn koma, hver ber ábyrgð á niðurstöðum og hvernig brugðist er við ef eitthvað fer úrskeiðis.
Þess vegna er mikilvægt að nálgast tæknina í ákveðinni röð. Fyrst skoðum við grunnuppsetningu kerfisins, síðan þá sjálfvirkni sem er í boði, samþættingar við önnur kerfi og loks hvort þörf sé á sérforritun eða gervigreindarlausnum.
Markmiðið á ekki að vera að innleiða sem fullkomnasta tækni, heldur að finna einföldustu lausnina sem skilar raunverulegum ávinningi.
Stöðugar umbætur skila mestum árangri
Eftir tæpa tvo áratugi í vinnu með Navision og Business Central er eitt af því sem stendur upp úr hjá mér sem skilur á milli fyrirtækja sem ná miklum árangri í kerfinu og þeirra sem gera það ekki þá er það viljinn til að halda áfram breytingum eftir innleiðingu.
Innleiðing og gangsetning er ekki lokamarkmið heldur ætti það að vera upphafspunktur á nýju verklagi við rekstur fjárhagskerfisins.
Fyrirtæki sem vinna markvisst að því að auka þekkingu notenda, endurskoða ferla og leita að stöðugum umbótum eiga yfirleitt einfaldara með að ná meiri ávinningi úr sömu fjárfestingu en þau sem líta á verkefnið sem lokið eftir að kerfið er komið í notkun.
Um höfund
Logi Jóhannesson er liðsstjóri í tækniráðgjöf Deloitte og sérhæfir sig í þarfagreiningu, innleiðingu og hagnýtingu á Microsoft Dynamics 365 Business Central. Hann hefur yfir 18 ára reynslu af Navision og Business Central og hefur aðstoðað fyrirtæki af öllum stærðum við að bæta ferla, auka sjálfvirkni og ná meiri ávinningi úr upplýsingakerfum sínum.