Deloitte tekur virkan þátt í UTmessunni þetta árið 📢
Alma Tryggvadóttir, sem leiðir netöryggisráðgjöf Deloitte, verður með erindi á UTmessunni föstudaginn 6. febrúar. Í erindi Ölmu verður farið yfir hvernig smærri aðilar á fjármálamarkaði geta mætt ítarlegum kröfum DORA á skilvirkan, sveigjanlegan og öruggan hátt.
Laugardaginn 7. febrúar er svo opið hús í Hörpu þar sem UTmessan býður ungum sem öldnum að koma og upplifa töfra tækninnar. Þar verður Deloitte með glæsilegan bás og ráðgjafar í Tækniráðgjöf Deloitte taka á móti gestum og gangandi með bros á vör 👋
Fjölbreytta og skemmtilega dagskrá Tæknidagsins má sjá hér: Dagskrá