Fara í aðalefni

Gervigreind

Hámarkaðu afköstin

Sérfræðingar Deloitte á sviði gervigreindar veita þér dýpri skilning á hvernig þú getur hámarkað afköst og árangur með markvissri notkun á sjálfvirkni og gervigreind. 

Lítil skref sem koma þér langt

Mikið er talað um byltingu gervigreindar og flestir ef ekki allir hafa prófað ýmis gervigreindartól á eigin skinni. Það sem reynist erfitt fyrir fyrirtæki er að sjá fyrir sér næsta skref; hvernig hægt er að umbylta verkferlum og vinnu innan teyma í stað þess að leggja einfaldlega gervigreind ofan á gamla ferla.

Við leggjum áherslu á praktíska nálgun á gervigreind og að hjálpa fyrirtækjum að taka lítil skref sem koma þeim langt. Í ferlinu hjálpum við þér að svara spurningum á borð við:

  • Hvað er gervigreind og hvað er hún ekki?
  • Hvernig byrja ég þessa vegferð?
  • Hvar væri hægt að nýta gervigreind í minni starfsemi?
  • Hvaða verkefni ætti ég að fara af stað með og hvernig mæli ég árangur?
  • Hvaða gervigreindarlausnir henta best?

Þjónustan

Hvar standa íslensk fyrirtæki í notkun gervigreindar?

Innsýn úr nýlegri könnun

Niðurstöður úr nýlegri könnun Deloitte sýna að íslenskir stjórnendur gera sér grein fyrir mikilvægi tækninnar fyrir framtíðarvöxt fyrirtækja og að gervigreind muni gegna þar lykilhlutverki á næstu árum. Þrátt fyrir það er nýting hennar enn á byrjunarstigi hjá mörgum fyrirtækjum og ávinningurinn síður en svo fullnýttur.

Helsta hindrunin í innleiðingu gervigreindar er ekki skortur á fjármagni eða tæknilegum innviðum, heldur þekkingu og hæfni starfsfólks. Viljinn er til staðar, en enn er töluvert í land til að umbreyta notkun í raunverulegan rekstrarávinning. Fyrirtæki sem ná raunverulegu forskoti eru því ekki endilega þau sem fjárfesta mest í tækninni sjálfri, heldur þau sem byggja markvisst upp þekkingu, færni og menningu sem styður við árangursríka nýtingu hennar.

Það felur í sér að efla skilning stjórnenda, byggja upp hagnýta færni innan teymis og skapa rými til að prófa, læra og þróa.. Markviss fræðsla, vinnustofur og þverfagleg samvinna eru þar lykilþættir.

Hjá Deloitte styðjum við fyrirtæki í þessari vegferð með því að tengja saman stefnumótun, fræðslu og hagnýta innleiðingu. Markmiðið er að umbreyta þekkingu í aðgerðir og tryggja að gervigreind verði ekki einungis hugtak í stefnu, heldur áþreifanlegt samkeppnisforskot.