Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins fer fram fimmtudaginn 15. janúar 2026 kl. 8:30-10:00 í Silfurbergi, Hörpu. Léttur morgunverður er frá kl. 8:00.
Skattadagurinn hefur verið haldinn árlega frá árinu 2004. Mjög góð þátttaka hefur verið á viðburðinn og ljóst er að hann hefur fest sig í sessi hjá einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja hlýða á það nýjasta sem er að gerast í skattamálum hverju sinni.
--
🟢 Setning og fundarstjórn
Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs
🟢 Opnunarávarp
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
🟢 Skattalagabreytingar og skattframkvæmd
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður, meðeigandi Deloitte Legal
🟢 Frá auðlind til skattstofns – hvar liggja mörkin?
Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins
🟢 Skattar eru ekki bara skattar
Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water