Fara í aðalefni

 

 

Starf í endurskoðun hjá Deloitte

Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 130 sérfræðingar við ytri endurskoðun í þremur hópum, sem þó vinna mikið saman. Endurskoðunarsviði tilheyra líka aðrir sérfræðingar, svo sem sérfræðingar í tölvuendurskoðun og innri endurskoðun. 

Starf í ytri endurskoðun hjá Deloitte er bæði krefjandi og gefandi. Verkefnin eru ótrúlega skemmtileg og fjölbreytt, til að mynda gerð ársreikninga, gerð skattframtala, staðfesting ófjárhagslegra upplýsinga, afstemmingar, birgðatalning og heimsóknir og samskipti við viðskiptavini.

Þó sérfræðingar okkar eigi það sameiginlegt að vera talnaglöggir, nákvæmir og vandvirkir, þá er um að ræða fjölbreytta flóru af fólki. Sum eru að stíga sín fyrstu skref í faginu og sinna starfinu jafnvel samhliða grunn- eða framhaldsnámi. Aðrir hafa nýlokið löggildingarprófi og eru að festa sig í sessi sem ábyrgir endurskoðendur. Enn aðrir búa yfir áratuga reynslu, djúpri sérfræðiþekkingu og sterku innsæi sem þau miðla áfram.

 

 

 

 

Heyrðu frá sérfræðingum okkar

Tölur

130

sérfræðingar

51

löggiltur endurskoðandi

3

hópar

37

ára meðalaldur

Did you find this useful?

Thanks for your feedback