Íslensk fyrirtæki líta sífellt meira á tækni sem lykilforsendu vaxtar en víða skortir enn skýra stefnu, forgangsröðun og markvissa innleiðingu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Deloitte um stöðu upplýsingatækni hjá íslenskum fyrirtækjum sem lögð var fyrir stjórnendur og ábyrgðaraðila upplýsingatæknimála hjá íslenskum fyrirtækjum þvert á atvinnugreinar.
Tæknin til staðar en skortur á stefnu
Niðurstöðurnar sýna að stjórnendur eru almennt sammála um mikilvægi tækninnar fyrir reksturinn. Alls telja 93% svarenda tækni og tæknilega framþróun mikilvæga fyrir vöxt fyrirtækis síns. Könnun Deloitte bendir jafnframt til þess að mörg fyrirtæki eigi enn erfitt með að nýta tæknina sem raunverulegan drifkraft vaxtar og breytinga í rekstrinum. Til marks um það segist nær fjórðungur svarenda ekki vita hversu háu hlutfalli af veltu fyrirtækisins er varið í upplýsingatækni og stór hluti fyrirtækja ver enn meginhluta fjármagns í viðhald fremur en þróun.
Niðurstöðurnar gefa til kynna ákveðna mótsögn: Íslenskir stjórnendur telja tækni og gervigreind lykilinn að vexti, en óljósar áherslur og skortur á viðeigandi þekkingu standa í vegi fyrir raunverulegum árangri.
Guðrún Ólafsdóttir, meðeigandi Deloitte og sviðsstjóri Tækniráðgjafar
Gervigreindarþekking er sú færni sem flestir telja mikilvægast að byggja ætti upp innanhúss á næstu árum. Á sama tíma telja þeir líklegt að sérhæfð verkefni á borð við forritun verði í auknum mæli útvistað.
Gervigreind í brennidepli en flest fyrirtæki á byrjunarreit
Gervigreind er sá þáttur sem stjórnendur telja líklegastan til að hafa mest áhrif á starfsemi fyrirtækja á næstu árum. Þrátt fyrir það eru flest fyrirtæki enn á frumstigi í nýtingu hennar. Meirihluti þeirra hefur hvorki innleitt gervigreind með markvissum hætti né sett sér stefnu eða siðareglur um ábyrga notkun hennar. Jafnframt kemur fram í niðurstöðum Deloitte að stærsta hindrunin sé ekki kostnaður heldur þekking og færni starfsfólks.
Könnun Deloitte bendir þannig til þess að stærstu tækifærin felist ekki aðeins í nýrri tækni, heldur í því að fyrirtæki skýri forgangsröðun sína, byggi upp innri getu og tengi upplýsingatækni betur við kjarnastarfsemi sína. Þau fyrirtæki sem ná að sameina skýra stefnu, öfluga gagnafærni, traust netöryggi og hagnýta nýtingu gervigreindar eru líklegust til að ná forskoti á markaði á næstu árum.