Fara í aðalefni
Welcome to Deloitte

If we have selected the wrong experience for you, please change it above.

Tækni, fjölmiðlar og fjarskipti

Traustur samstarfsaðili

🟢 Tæknifyrirtæki og hugbúnaðarhús
🟢 Fjölmiðlar
🟢 Fjarskiptafélög

Fyrir framtíðina

Tækni-, fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtæki móta hvernig við búum, vinnum, eigum samskipti og sækjum upplýsingar. Á sama tíma þurfa þau að þróa nýjar lausnir, tryggja öryggi og byggja upp trausta innviði sem standast sívaxandi kröfur viðskiptavina og samfélagsins.

Hjá Deloitte sameinum við alþjóðlega þekkingu og staðbundna reynslu til að styðja fyrirtæki við stefnumótun, tækniumbreytingu, regluvörslu, gagnastjórnun og sjálfbæran vöxt.

Alþjóðlegur atvinnugreinahópur

Innan Deloitte er alþjóðlegur atvinnugreinahópur sem sérhæfir sig í þjónustu við tækni-, fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtæki. Þessi hópur styður við okkar starfsfólk, tryggir nauðsynlega þjálfun og miðlar upplýsingum um það sem er að eiga sér stað í greininni.

Þátttaka í þessum hópi gerir okkur kleift að fylgjast vel með öllum breytingum sem eiga sér stað á lögum, reglugerðum og stöðlum. Þetta leiðir til gagnlegra og upplýsandi umræðu við samstarfsfélaga úti í heimi um áhrif slíkra breytinga og fyrir vikið, leiðir til þess að við getum þjónustað viðskiptavini okkar enn betur.

 

Deloitte á Íslandi hefur greiðan aðgang að og vinnur með sérfræðingum í öðrum aðildarfélögum og á mikil þekkingaröflun sér stað meðal félaganna.

Tengslanet okkar veitir viðskiptavinum því aðgang að sérfræðiþekkingu sem á sér vart hliðstæðu.

Sérhæfð þjónusta

Við veitum heildstæða þjónustu og ráðgjöf sem tekur mið af þínum rekstrarmarkmiðum.

Innsýn 

Við þekkjum rekstrar- og lagaumhverfið og fylgjumst náið með þróun greinarinnar, bæði hér á landi og erlendis.

Alþjóðlegt bakland

Við höfum aðgengi að 470.000 sérfræðingum víðsvegar um heiminn.

Faglegt efni

Deloitte birtir reglulega greinar, rannsóknir, skýrslur og annað faglegt efni sem veitir innsýn í þróun viðskiptaumhverfis, atvinnulífs og efnahagsmála. Efnið byggir á sérfræðiþekkingu ráðgjafa Deloitte hér á landi, og um allan heim, og tekur mið af meðal annars nýjustu stefnum, straumum og lagabreytingum, auk tækifæra og áskorana sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir.