Fara í aðalefni
Welcome to Deloitte

If we have selected the wrong experience for you, please change it above.

Fjármálastjórakönnun Deloitte

Bjartsýni íslenskra fjármálastjóra minnkar

Fjármálastjórakönnun Deloitte er nú lögð fyrir einu sinni á ári hér á landi og er tilgangur hennar að sýna mat fjármálastjóra á stöðu fyrirtækja og efnahagsumhverfi. Þetta er í 20. sinn sem könnunin er framkvæmd hér á landi og í 12 sinn sem hún er unnin í samstarfi við önnur aðildarfélög Deloitte í Evrópu. Niðurstöður endurspegla því skoðanir fjármálastjóra á Íslandi í samanburði við fjármálastjóra í öðrum Evrópulöndum, þar sem við á. Meðaltal niðurstaðna í Evrópu er vegið eftir landsframleiðslu hvers lands.

Rafrænn spurningalisti var sendur til fjármálastjóra 300 stærstu fyrirtækja landsins í apríl 2024 og viljum við þakka þeim sem tóku þátt kærlega fyrir. 

50%

íslenskra fjármálastjóra telur að hagvöxtur muni aukast á næstu tveimur árum

33%

íslenskra fjármálastjóra telja sig standa frammi fyrir mikilli óvissu

79%

íslenskra fjármálastjóra telja lántöku hjá bönkum óhagkvæma

  • Nettó viðhorf fjármálastjóra í Evrópu gagnvart þróun tekna, fjárfestinga og ráðninga nýrra starfsmanna á næstu 12 mánuðum mældist jákvætt, en lækkaði þó örlítið á milli ára.
  • Nettó viðhorf gagnvart þróun EBITDA á næstu 12 mánuðum stendur í stað og er áfram jákvætt þó að breyting sé á milli landa.
  • Helmingur fjármálastjóra á Íslandi (50%) telur að hagvöxtur muni aukast á næstu tveimur árum. Hlutfallið hefur hækkað um 11 prósentustig frá því síðasta vor.
  • Fjárhagsleg og efnahagsleg óvissa er að mælast minni en síðasta vor en um 33% fjármálastjóra á Íslandi telja sig standa frammi fyrir mikilli óvissu, samanborið við 38% síðastliðið vor. 
  • Vaxtastig var nefnt sem stærsti áhættuþátturinn í rekstri íslenskra fyrirtækja annað árið í röð, en svarhlutfallið jókst um 5% á milli ára.
  • Áfram er innri fjármögnun talin hagkvæmasti kostur fjármögnunar hjá bæði fjármálastjórum á Íslandi og í Evrópu.
  • Um 79% íslenskra fjármálastjóra telja lántöku hjá bönkum óhagkvæma, sem er áframhaldandi vöxtur frá fyrra ári þegar 66% töldu hana óhagkvæma.

Did you find this useful?

Thanks for your feedback