Áreiðanleg gögn í rauntíma eru grundvöllur fyrir réttri ákvarðanatöku. Við smíðum skýrslur, mælaborð og framkvæmum flóknar greiningar byggðar á því að safna, skilja og birta óunnin gögn.
Góðar skýrslur eru mikilvægar fyrir allan rekstur, og við erum með mikla sérfræðikunnáttu í skýrslugerð.
Oft er þó mikil þörf á að skoða hlutina í breiðara samhengi, og okkar helsta markmið með gagnaráðgjöf er að hámarka virði gagna fyrir þinn rekstur. Þetta gerum við með því að svara spurningum eins og:
Hvaða virði viljum við fá út úr gögnunum okkar?
Hvaða rekstrarákvarðanir þurfa gögnin okkar að styðja við?
Hvaða gagnaumhverfi er réttast fyrir mig og hvað kostar það?
Getum við minnkað handavinnu við skýrslugerð, áætlanir og þess háttar?
Eru samskipti milli kerfa rétt sett upp?
Hvernig væri hægt að besta Power BI skýrslurnar okkar?
Obbosíí, þetta virkar ekki!
Til þess að sjá þetta efni verður þú að breyta vefkökustillingum og samþykkja valkvæðar vefkökur.
Við byggjum upp miðlæg gagnaumhverfi með Microsoft Fabric og Databricks.
Með sérfræðiþekkingu í ráðgjöf, innleiðingu, gagnavinnslu og stjórnun gagnainnviða tryggjum við örugga og skilvirka innviði sem styðja við framtíðarþarfir fyrirtækisins.
Við hönnum og innleiðum Power BI lausnir sem gera gögn aðgengileg og aðgerðarhæf.
Með sérþekkingu í uppsetningu gagnalíkana, öryggisstillingum og sjálfvirkum uppfærslum skýrslna tryggjum við áreiðanlega innsýn og stjórn á lykilmælikvörðum fyrirtækisins.