Fara í aðalefni

Áhættustýring

Stjórnaðu áhættunum í þínum rekstri

Skilar áhættustjórnun mælanlegum ávinningi fyrir fyrirtækið þitt? Öflug áhættustýring greinir og metur áhættuþætti sem geta valdið því að fyrirtækið þitt nái ekki sínum markmiðum og skilgreinir hvernig brugðist er við áhættunni.

Lágmarka áhættu, hámarka ávinning

Við aðstoðum þig við að skilja og stjórna áhættum í þínum rekstri. Dæmigert verkefni felst í því að greina viðskiptaferla, greina áhættur sem í þeim felast og meta hvort innri eftirlitsaðgerðir dragi nægilega úr og stýri áhættunni.

Þjónusta okkar felur meðal annars í sér:

  • Áhættumat
  • Mat á rekstraráhættu fyrirtækisins
  • Breytingarstjórnun fyrir áhættustýringu
  • Hönnun og framkvæmd áhættustýringar
  • Útvistun/hlutvistun áhættustýringar
  • Ráðgjöf og þjálfun fyrir áhættustjórnendur og starfsfólk áhættustýringar
  • Mat á áhættumenningu fyrirtækisins
  • Mat á áhættu í framboðskeðjunni
  • Mat á áhættu í tengslum við birgja og aðra samstarfsaðila