Endurskipulagning hentar fyrirtækjum sem standa frammi fyrir fjárhagslegum, rekstrarlegum eða stjórnunarlegum vanda. Deloitte aðstoðar við að koma auga á og greina umfang, dýpt, orsakir og afleiðingar vandans, auk þess að aðstoða við að bregðast við vandanum og koma fyrirtækinu á betri stað.
Deloitte býr yfir umfangsmikilli reynslu af fjárhagslegri og rekstrarlegri endurskipulagningu fyrirtækja. Við veitum þjónustu til bæði fyrirtækja, stjórnenda og eigenda, lánadrottna og annarra hluthafa fyrirtækja í erfiðleikum.
Þjónusta okkar felur meðal annars í sér:
Framkvæma óháða úttekt á starfsemi félagsins.
Yfirfara og meta aðgerðaáætlun, viðskiptaáætlun, rekstraráætlanir og spár til að leggja mat á getu félagsins til að standa við skuldbindingar sínar og skilgreina rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar.
Meta lausafjárþörf félagsins til skamms- og langtíma og koma með tillögur til að styrkja sjóðstreymi félagsins og hámarka nýtingu veltufjármuna.
Koma auga á og greina umfang, dýpt, orsakir og afleiðingar fjárhagslegs vanda sem fyrirtækið stendur frammi fyrir. Í framhaldinu útbúum við aðgerðaáætlun og tökum einnig virkan þátt í framkvæmd hennar.
Ná fram hagræðingu í rekstri, til dæmis með innvistun eða útvistun.
Leiða áfram eða styðja við undirbúning þess að ná nýrri markaðsstöðu, með gerð áætlana er varða rekstur, veltu eða endurskipulagningu.
Aðstoða stjórnendur í gegnum endurskipulagningarferlið. Deloitte getur einnig lánað starfsmann til félagsins til að leiða endurskipulagningarferlið.
Leiða sölu á einingum í taprekstri eða órekstrartengdum eignum (t.d. eignarhlut í öðrum félögum).
Veita ráðgjöf við stjórnun félags í skyndilegum fjárhagsvanda ásamt því að leiða samningaviðræður við kröfuhafa og aðra hluthafa.
Veita aðstoð til skiptastjóra, t.d. með skoðun afmarkaðra þátta, verðmats o.fl.