Fara í aðalefni

Fjárhagskerfi

Þarfagreining, innleiðing og rekstur kerfa

Fjárhagskerfi eru ein mikilvægasta grunnstoð fyrirtækja. Þau eru hjartað í rekstrinum sem halda utan um t.d. fjárhag, sölu, innkaup og birgðastjórnun.

Áralöng reynsla af innleiðingu allra helstu fjárhagskerfa

Fjárhagskerfi þurfa að geta stækkað og breyst með rekstrinum og verið kerfið sem stjórnendur stóla á fyrir betri innsýn, hraðari ákvörðunartöku og aukna skilvirkni í rekstrinum.

Við höfum áralanga reynslu af innleiðingu allra helstu fjárhagskerfa sem eru í notkun á Íslandi (Business Central, Microsoft AX / D365Finance, Oracle og SAP).


Sérfræðiþekking okkar:

  • Þarfagreining fyrir innleiðingu eða uppfærslu fjárhagskerfis
  • Úttekt á skilvirkni fjárhagskerfis, svokallað „health check“
  • Innleiðing fjárhagskerfa
  • Rekstur fjárhagskerfa

Við höfum einnig unnið mörg verkefni tengd óháðri verkefnastýringu, þar sem markmiðið er að tryggja hagsmuni viðskiptavina við hinar ýmsu innleiðingar:

  • Verkefnastýring við innleiðingu lausnar, þ.e. tryggja almennan framgang verkefnis
  • Birgjastýring, þ.e. tryggja að innleiðingaraðili eða birgi skili verkefni skv. áætlun
  • Uppsetning á prófanaáætlun
  • Prófanir fyrir hönd viðskiptavinar út frá prófanaáætlun
  • Kennsla og aðstoð við gangsetningu

 

Okkar sérstaða liggur í þeirri breiðu sérfræðiþekkingu sem Deloitte býr yfir, þvert á svið og landamæri. Ráðgjafar okkar hafa ekki aðeins mikla reynslu af tæknilegri hlið innleiðingarinnar, heldur styðjumst við einnig við innlenda og alþjóðlega þekkingu Deloitte á innviðum og rekstri fyrirtækja. Þannig gefur breidd sérfæðinga Deloitte á sviði endurskoðunar, bókhalds, fjármálaráðgjafar og skatta- og lögfræðitengdra mála okkur sérstöðu í þeim áskorunum sem upp geta komið við innleiðingu eða uppfærslu fjárhagskerfis.

Við einfaldlega þekkjum og skiljum þarfir ykkar frá öllum hliðum.