Deloitte og KSÍ hafa, nú annað árið í röð, gefið út samantektarskýrslu
um fjármál íslenskrar knattspyrnu.
Unnar hafa verið greiningar á ársreikningum þeirra félaga
sem hafa tekið þátt í keppni efstu deilda karla og kvenna á árunum 2020–2023. Tekjuliðir og gjöld félaganna hafa verið greind og ýmis áhugaverð atriði borin saman.
Gögn úr ársuppgjörum félaganna eru sett fram á gagnvirkan og
notendavænan hátt með mælaborði Microsoft Power BI sem gefur fólki innsýn í rekstur félaganna á skýran og aðgengilegan hátt. Samanburður á milli knattspyrnufélaga og ára verður vart auðveldari með örfáum smellum.
Smelltu á örina í neðra hægra horni til að opna skýrslu í heilskjá.