Þjónusta

Hvatakerfi

Deloitte aðstoðar við smíði og innleiðingu hvatakerfis.

Tilgangur hvatakerfa er að sameina hagsmuni starfsmanna og hluthafa með því að umbuna starfsmönnum fyrir að uppfylla væntingar hluthafa um árangur í rekstri.

Hvatakerfi

Mikilvægt er að vanda til verka við smíði og innleiðingu hvatakerfis þar sem góð undirbúningsvinna er nauðsynleg til að tryggja árangur með innleiðingu hvatakerfis. Hvatakerfið þarf að smíða þannig að það sé einfalt og gagnsætt en jafnframt skilvirkt, þannig að ávinningur sé umfram kostnað.

Við smíði og innleiðingu hvatakerfis þarf að horfa til rekstrarlegra, reikningshaldslegra, skattalegra og lögfræðilegra þátta.

Hverju þarf að huga að?

  • Hvatakerfið verður að sníða þannig að það henti starfsemi fyrirtækisins og rekstrarumhverfi. Dæmi um atriði sem hafa þarf í huga við smíði og innleiðingu hvatakerfa:
  • Hvers konar árangurstenging hentar rekstrarformi fyrirtækisins? Hverjir eru lykil virðishvatar félagsins? Hver eru markmið næstu ára?
  • Á hvaða formi á að umbuna (til dæmis kaupaukagreiðslur, hlutabréf, kaupréttir)?
  • Hvaða starfsfólks ætti hvatakerfið að ná til?
  • Á að verðlauna einstaklinginn eða hópinn?
  • Á að beita sömu hvötum óháð sviðum eða stöðugildum?
  • Hver eru skattaleg áhrif hvatakerfisins á fyrirtæki og starfsfólk?
  • Hvaða áhættuþættir eru til staðar og hvernig á að koma í veg fyrir þá?
  • Á einungis að líta til fjárhagslegra hvata?
  • Hver er kostnaður við hvatakerfið og hver er mögulegur ávinningur?
  • Hver eru reikningshaldsleg áhrif?

Hvernig getur Deloitte orðið að liði?

Deloitte hefur yfir að ráða reynslumiklum ráðgjöfum á öllum þeim sviðum er snerta útfærslu hvatakerfis. Reynsla og þverfagleg þekking á sviði verðmats, reikningshalds, skatta og lögfræði gerir okkur kleift að bjóða fyrirtækjum upp á alhliða ráðgjöf frá upphafi ferlisins til loka þess.

Nánari upplýsingar veitir:

Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir

Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir

Meðeigandi, sviðsstjóri Fjármálaráðgjafar

Lovísa er einn af meðeigendum Deloitte ehf. og sviðsstjóri Fjármálaráðgjafar. Þá er hún forstöðumaður atvinnugreinahóps Deloitte er snýr að sveitarfélögum og opinberum aðilum. Lovísa hefur víðtæka rey... Meira