Fara í aðalefni

Höfum þýðingarmikil áhrif, saman

Tilgangur Deloitte er að hafa þýðingarmikil áhrif (e. make an impact that matters). Við ætlum að hafa raunveruleg, áþreifanleg áhrif á viðskiptavini, fólkið okkar og samfélag.

Gildin eru leiðarvísir í okkar daglega starfi

 

Gildi Deloitte eru fimm talsins og eru þau sameiginleg þvert á öll aðildarfélög. Gildin fimm innihalda tiltekin grunnviðmið sem leiðbeina okkur í daglegum störfum. Þau skapa væntingar um til hvers við ætlumst af hvort öðru og skilgreina hvernig við eigum að haga okkur.

Leiðandi í faglegri þjónustu
Deloitte er leiðandi í faglegri þjónustu og ætlar að endurhanna þjónustuna fyrir framtíðina. Við skuldbindum okkur til að skapa tækifæri og varða leiðina að sjálfbærari heimi.

Heilindi að leiðarljósi
Með því að starfa af heilindum hefur Deloitte áunnið sér traust viðskiptavina, eftirlitsaðila og almennings. Að viðhalda því trausti er eitt mikilvægasta verkefni okkar.

Umhugað um hvert annað
Við hugsum um hvert annað og setjum virðingu, sanngirni, starfsþróun og vellíðan hvers annars í forgang.

Samheldin og fjölbreytt heild
Við skörum fram úr þegar við stuðlum að samheldinni menningu og fögnum fjölbreytni. Við vitum að það laðar til okkar framúrskarandi fólk, drífur nýsköpun og ýtir undir heildstæðari lausnir fyrir viðskiptavini.

Vinnum saman til að hafa áhrif
Við vinnum saman þvert á svið, lönd og hæfnissvið. Með því sköpum við áþreifanleg, mælanleg og rekjanleg áhrif.

Okkar skuldbindingar

Með því að starfa af heilindum hefur Deloitte áunnið sér traust viðskiptavina, eftirlitsaðila og almennings. Að viðhalda því trausti er eitt mikilvægasta verkefni okkar.

Lesa meira

Hjá Deloitte trúum við því að allir menn fæðist frjálsir og jafnir að virðingu og réttindum. Yfirlýsing Deloitte um mannréttindi staðfestir afstöðu okkar og skuldbindingu til að virða mannréttindi innan starfsemi okkar og vinnuumhverfis.

Lesa meira

Við erum stolt af því að vera hluti af alþjóðlegu félagi sem tekur því alvarlega að hafa þýðingarmikil áhrif á samfélagið. Metnaðarfull markmið hafa verið sett hjá Deloitte áheimsvísu, sem fylgja sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Deloitte á Íslandi fylgir stefnu alþjóðafyrirtækisins í umhverfismálum með WorldClimate verkefninu og í samfélagslegum áherslum með WorldClass verkefninu. 

Lesa meira um WorldClimate og WorldClass

Deloitte stuðlar að auknu trausti og ábyrgð í viðskiptalífinu og eflir þannig samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi.

Við fylgjum siðareglum og alþjóðlegum stöðlum sem um okkar störf gilda og skilum viðskiptavinum gæðavinnu ásamt því að efla menntun og hæfni sérfræðinga sem hjá okkur starfa.

Deloitte skoðar samskipti við alla hagsmunaaðila og veitir óháða álits- og sérfræðiráðgjöf, veitir aðgengi að réttum upplýsingum og fylgir lögum og reglum.

Deloitte er með ISO 27001 vottun um upplýsingaöryggi.

Lesa meira