Deloitte hefur hlotið vottunina Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2025 en á hverju ári taka Keldan og Viðskiptablaðið saman lista yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar.
Horft er til eftirfarandi þátta við val á listann hverju sinni:
Rekstrarárin tvö á undan liggja til grundvallar
Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.