Nú um árabil hefur Deloitte á Íslandi haft þann háttinn á að senda ekki jólakort til viðskiptavina heldur þess í stað látið andvirði þeirra renna til góðs málefnis. Í ár vildum við gera meira og gleðja enn fleiri um hátíðirnar og leggja þannig okkar af mörkum til samfélagsins.
Í ár dreifum við hlýju í formi ullarteppa, -sokka, -húfa og -vettlinga. Á þriðja hundrað vara hafa verið gefin til fjölmarga ólíkra góðgerðarfélaga sem eiga það sameiginlegt að veita skjólstæðingum sínum ómissandi aðstoð og ráðgjöf.
Um leið sendum við hugheilar hátíðarkveðjur til allra með innilegum þökkum fyrir árið sem er að líða💚