Eldhresst starfsfólk á starfsstöð Deloitte í Kópavogi og á Akureyri skelltu sér út að plokka í nýliðinni viku í því augnamiði að fegra nærumhverfið okkar. Nóg var af rusli, því miður, en veðrið lék við hvern sinn fingur og stemmingin í hópnum einstaklega góð.
Að loknu plokki, og þónokkuð mörgum ruslapokum síðar, tók við pizzaveisla og næsheit fyrir galvaska plokkara sem höfðu skilað af sér frábæru verki. Dásamleg samverustund með kollegunum í veðurblíðunni; gott að stíga aðeins frá hefðbundnum störfum á skrifstofunni og láta gott af sér leiða💚
Viljum við nýta tækifærið og þakka bæði Kópavogsbæ og Akureyrarbæ fyrir þeirra aðstoð og framlag.
Deloitte á Íslandi gefur starfsfólki einn launaðan dag á ári í sjálfboðaliðastarf í þágu góðs málefnis, svo sem í þágu náttúruverndar.