Fara í aðalefni

Frímann Snær Guðmundsson hefur verið tekinn inn í eigendahóp Deloitte

Frímann Snær Guðmundsson hefur verið tekinn inn í eigendahóp Deloitte.

Frímann hóf störf hjá Fjármálaráðgjöf Deloitte árið 2015. Hann ber ábyrgð á þjónustu og ráðgjöf á sviði verðmata og líkanagerðar og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun þeirrar þjónustu hér á landi. Hann hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf og greiningum fyrir fyrirtæki í fjölmörgum atvinnugreinum, með sérhæfingu á sviði innviðaverkefna, orku- og veitumála, sjávarútvegs og fiskeldis sem og fasteignafélaga og tryggingamála. Þá hefur hann jafnframt leitt fjölbreytt verkefni fyrir ráðuneyti, sveitarfélög og aðra opinbera aðila á sviði fjárhags- og arðsemisgreininga.

Frímann er með M.Sc.-gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla, auk þess sem hann stundaði skiptinám við Oklahoma State University í Bandaríkjunum. Þá öðlaðist hann fjölbreytta og alþjóðlega reynslu hjá Deloitte í Danmörku á árunum 2016-2017 og hefur í framhaldinu unnið markvisst að auknu samstarfi Deloitte þvert á Norðurlöndin.

Samhliða störfum sínum hefur hann meðal annars kennt námskeið við Háskóla Íslands á sviði viðskiptafræði og hagfræði.

„Frímann hefur um árabil verið traustur ráðgjafi fyrir marga af okkar lykilviðskiptavinum og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í að styrkja og efla Fjármálaráðgjöf Deloitte. Það er því mikið ánægjuefni að bjóða hann velkominn í eigendahóp Deloitte og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi árum,” segir Lovísa Finnbjörnsdóttir, forstjóri Deloitte.