If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
🟢 Spítalar og heilsugæslur
🟢 Hjúkrunar- og dvalarheimili
🟢 Ýmis önnur læknisþjónusta
🟢 Lyfjafyrirtæki
🟢 Líftæknifyrirtæki
🟢 Heilbrigðistækni
Heilbrigðisþjónusta snýst um að bæta lífsgæði, efla lýðheilsu og skapa samfélaginu okkar verðmæti með þekkingu, rannsóknum og nýsköpun.
Ör tækniþróun, aukin gagnagreind og framfarir í lífvísindum opna á nýja möguleika til að þróa þjónustu, hraða rannsóknum og styðja við upplýstari ákvarðanir. Mikilvægt er þó að fyrirtæki samræmi stefnu, rekstur, tækni og regluverk þannig að nýsköpun skili raunverulegum ávinningi fyrir einstaklinga og samfélagið. Deloitte hjálpar viðskiptavinum að umbreyta þekkingu og hugmyndum í lausnir sem skila mælanlegum árangri.
Alþjóðlegur atvinnugreinahópur
Innan Deloitte er alþjóðlegur atvinnugreinahópur sem sérhæfir sig í þjónustu við heilbrigðisstofnir og - þjónustu, auk lífvísinda. Þessi hópur styður við okkar starfsfólk, tryggir nauðsynlega þjálfun og miðlar upplýsingum um það sem er að eiga sér stað í greininni.
Þátttaka í þessum hópi gerir okkur kleift að fylgjast vel með öllum breytingum sem eiga sér stað á lögum, reglugerðum og stöðlum. Þetta leiðir til gagnlegra og upplýsandi umræðu við samstarfsfélaga úti í heimi um áhrif slíkra breytinga og fyrir vikið, leiðir til þess að við getum þjónustað viðskiptavini okkar enn betur.
Sérhæfð þjónusta
Við veitum heildstæða þjónustu og ráðgjöf sem tekur mið af þínum rekstrarmarkmiðum.
Innsýn
Við þekkjum rekstrar- og lagaumhverfið og fylgjumst náið með þróun greinarinnar, bæði hér á landi og erlendis.
Alþjóðlegt bakland
Við höfum aðgengi að 470.000 sérfræðingum víðsvegar um heiminn.