Deloitte á Íslandi var fjármálaráðgjafi Fjármála- og efnahagsráðuneytisins (FJR) í tengslum við uppgjör Íbúðalánasjóðs við eigendur HFF-skuldabréfa.
Uppgjörið er eitt stærsta sinnar tegundar á íslenskum fjármálamarkaði á síðari árum og fól í sér yfirgripsmiklar viðræður milli ríkisins og eigenda skuldabréfanna.
Ferlið hófst haustið 2022 með formlegum viðræðum milli ríkisins og lífeyrissjóðanna. Sett var á fót sérstök viðræðunefnd skipuð fulltrúum fjármálaráðherra og ráðgjöfum lífeyrissjóðanna. Deloitte átti eitt af þremur sætum í nefndinni og kom að mótun tillagna sem síðar hlutu samþykki bæði skuldabréfaeigenda og Alþingis, í nánu samstarfi við lögfræðiráðgjafa ráðuneytisins og aðra tengda aðila. Jafnframt kom Deloitte í Svíþjóð að staðfestingu á útreikningum sem lágu að baki samkomulaginu.
Við hjá Deloitte erum stolt af því að hafa átt þátt í farsælli niðurstöðu í þessu mikilvæga máli sem þjónar bæði hagsmunum ríkisins og fjárfesta. Við þökkum sérstaklega gott samstarf við ráðuneytið og aðra ráðgjafa í ferlinu,
segir Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir, sviðsstjóri og meðeigandi Deloitte.
Tengiliður við fjölmiðla:
María Skúladóttir
Director of Brand, Marketing and Communications
+354 580 3020
mskuladottir@deloitte.is