Fara í aðalefni

Tímabundnar ráðningar

Er óvænt þörf á starfsfólki inn á fjármálasviðið?

Viðskiptavinir Deloitte hafa aðgang að fjölbreyttu úrvali sérfræðinga og fagfólks sem geta, með skömmum fyrirvara, stigið inn í hin ýmsu störf á fjármálasviðum fyrirtækja í fjarveru lykilstarfsfólks og tryggt þannig hnökralausan daglegan rekstur.

Tímabundnar ráðningar Deloitte gefa viðskiptavinum aðgang að fjölbreyttu úrvali sérfræðinga og fagfólks sem getur komið til starfa á fjármála- eða laundasviði fyrirtækja.

Að fá inn sérfræðing í tímabunda ráðningu er til dæmis algengt í fjarveru lykilstarfsfólks, svo sem vegna fæðingarorlofs eða veikinda. Þá getur verið tilvalið að fá inn auka hendur á álagstímum eða í átaksverkefnum. 

Dæmi um hlutverk sem við tökum að okkur:

  • Fjármálastjóri
  • Aðalbókari / bókari
  • Launafulltrúi
  • Sérfræðingur í reikningshaldi
  • Sérfræðingur á fjármálasviði
  • Verkefnastjóri, sem dæmi í ákveðnum átaksverkefnum