Viðburður
19 Mar.

Má þetta bara?

Sjálfbærni sem viðskiptatækifæri

Iceland
Tungumál viðburðar: Icelandic

Sjálfbærnidagur atvinnulífsins og Deloitte verður haldinn 19. mars kl. 08:30-10:30 í húakynnum Deloitte að Dalvegi 30.

 

 

Deloitte og Samtök atvinnulífsins halda árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins þar sem fyrirtæki á Íslandi geta sótt sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni. Tilgangur dagsins í ár er að skoða þau viðskiptatækifæri sem felast í sjálfbærri umbreytingu á starfsemi fyrirtækja, hvernig sjálfbærni getur laðað að framtíðarviðskiptavini, gefið samkeppnisforskot, opnað dyr að auknu fjármagni og mikilvægi þess að vita hvenær er stutt í grænþvott. Aðalfyrirlesari dagsins er Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndunum og meðeigandi.

Í kjölfar sameiginlegrar dagskrár verður boðið upp á vinnustofu fyrir leiðtoga fjármála og sjálfbærni þar sem við heyrum reynslusögur fyrirtækja af EU Taxonomy og eigum gagnlegar samræður

  • Húsið opnar kl. 08:30. 
  • Sameiginleg dagskrá hefst stundvíslega kl. 08:45 og stendur til kl. 10:15. 
  • Kaffi, morgunhressing og tengslamyndun 10:15-10:30 
  • Vinnustofa 10:30-12:00

---

Fundarstjóri: Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins.
  • Opnun: Better Business – Better world! Why The World Needs Business to Lead on Sustainability! How Business Can Leverage Sustainability for Business Benefits!
    Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndum og meðeigandi.
  • Hvar liggja siðferðisleg mörk sjálfbærni og hvenær er stutt í grænþvott?
    Gunnar Sveinn Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi.
  • Pallborðsumræður: Er hægt að hagnast á sjálfbærni og má það
    Umræðustjóri: Gunnar Sveinn Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi.
    -    Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar
    -    Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar
    -    Aðalheiður Jacobsen, eigandi og framkvæmdastjóri Netparta
    -    Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins

 

Kaffi og tengslamyndun

  • Vinnustofa fyrir leiðtoga fjármála og sjálfbærni - praktísk nálgun á EU Taxonomy
    Umræðustjóri: Margrét Helga Guðmundsdóttir

    Reynslusögur í byrjun vinnustofu frá Brimborg, Eimskip, Landsvirkjun og Reginn.

Upptaka frá viðburði

Tuesday, 19 Mar 2024 Iceland
Deila Deila viðburð