If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Íslensk fyrirtæki sem líkleg eru til að falla undir NIS2-tilskipunina mega ekki sofa á verðinum. Deloitte aðstoðar með undirbúning, innleiðingu og eftirfylgni.
NIS2-tilskipun Evrópusambandsins tók gildi þann 16. janúar 2023 og bar aðildarríkjum að innleiða kröfur hennar í landslög fyrir 18. október 2024.
Tilskipunin er ekki komin inn í íslenska löggjöf enn, en innleiðing er langt komin hérlendis og frumvarp um þinglega meðferð er á dagskrá stjórnvalda vorið 2027.
Hver eru helstu atriði NIS2?
Tilskipunin leysir af hólmi eldri NIS1-tilskipunina og setur enn ríkari kröfur um net- og upplýsingaöryggi fyrirtækja og stofnana sem teljast nauðsynlegir innviðir s.s. í orku-, samgöngu-, heilbrigðis- og opinbera geiranum.
Þetta felur meðal annars í sér:
Afar mikilvægt er að þeir aðilar sem teljast mikilvægir innviðir, og hafa ekki fallið undir sambærilegar netöryggiskröfur áður, aðlagi starfsemi sína að kröfum NIS2 sem fyrst en það eru aðilar sem sjá um póst- og flutningsþjónustu, sorphirðu og úrgangsstjórnun, framleiðslu og dreifingu efna eða matvæla og stafrænir þjónustuveitendur.