35. útgáfa skýrslunnar Annual Review of Football Finance sem Deloitte Sports Business Group gefur út árlega.
⚽ Tekjur evrópska knattspyrnumarkaðarins jukust um 6% á tímabilinu 2024/2025.
⚽ Samanlagðar tekjur félaga í stærstu fimm deildum Evrópu námu 21,6 milljörðum evra, 6% aukning frá fyrra ári.
⚽ Samanlegðar tekjur félaga í ensku úrvalsdeildinni (e. Premier League) námu 6,2 milljörðum punda, 8% aukning frá fyrra ári.
⚽ Samanlagðar tekjur félaga í ensku úrvaldsdeild kvenna (e. Women's Super League) námu 90 milljónum punda, aukning um 39% frá fyrra ári.
⚽ Samanlagðar tekjur félaga í ensku B-deildinni (e. Championship) drógust saman um 2% og námu alls 942 milljónum punda.
Tekjur evrópska knattspyrnumarkaðarins fóru í fyrsta sinn yfir 40 milljarða evra á tímabilinu 2024/25 og námu alls 40,2 milljörðum evra, samanborið við 38 milljarða evra árið áður.
Fimm stærstu knattspyrnudeildir Evrópu: Enska úrvalsdeildin, þýska Bundesliga, spænska LaLiga, ítalska Serie A og franska Ligue 1, skiluðu samanlagt 21,6 milljörðum evra í tekjur á tímabilinu 2024/25, samanborið við 20,4 milljarða evra árið áður.
Greining Deloitte bendir þó til þess að tekjuvöxtur félaga í þessum fimm stærstu deildum muni hægja á sér á næstu árum. Í sumum deildum er jafnvel gert ráð fyrir stöðnun eða samdrætti á tímabilunum 2025/26 og 2026/27.
Evrópsk knattspyrna hefur skapað sér sterka stöðu á alþjóðavettvangi en framundan eru nýjar áskoranir. Bandaríkin horfa í auknum mæli til Evrópumarkaðarins og samkeppni um athygli neytenda eykst stöðugt, bæði innan íþrótta og frá annarri afþreyingu.
Tim Bridge, meðeigandi hjá Deloitte UK.