If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Deloitte hefur, að beiðni Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), unnið greiningu á fyrirhuguðum skatta- og gjaldabreytingum sem snerta íslenska ferðaþjónustu. Í skýrslunni eru breytingarnar settar í samhengi við fjárhagslega stöðu og rekstrarafkomu greinarinnar, en hagnaður hennar nam 20,2 milljörðum króna árið 2024.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu og greiningu Deloitte er áætlað að þær skatta- og gjaldahækkanir sem teknar eru til skoðunar skili ríkissjóði samtals um 10,7 milljörðum króna árið 2027. Til samanburðar nam hagnaður einkennandi greina ferðaþjónustunnar 20,2 milljörðum króna árið 2024.
Í skýrslunni er meðal annars fjallað um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón, innleiðingu náttúru- og innviðagjalds og hækkun kílómetragjalds.
Kynntu þér greininguna og helstu niðurstöður hennar í skýrslunni.
Deloitte hefur greint möguleg áhrif fyrirhugaðra skatta- og gjaldabreytinga á íslenska ferðaþjónustu, en áætlað umfang breytinganna er metið á 10,7 milljarða króna árið 2027.
Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte