If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Greinin birtist á vefsvæði Viðskiptablaðsins 22. október 2026.
Hundruð íslenskra vefþjóna reyndust berskjaldaðir vegna alvarlegra öryggisveikleika í PHP-forritunarmálinu í vikunni. Viðvörun CERT-IS kallaði á skjót viðbrögð og í sumum tilvikum þurfti að taka vefi og kerfi tímabundið úr loftinu á meðan unnið var að vörnum og uppfærslum. Atvik sem þetta minnir á hversu hratt tæknileg ógn getur orðið að rekstrarlegri áskorun.
Þegar netöryggi er rætt beinist athyglin gjarnan að því hvernig koma megi í veg fyrir árásir. En jafn mikilvægt er að fyrirtæki og stofnanir geti haldið samfélagslega mikilvægri þjónustu gangandi þegar áföll verða og endurheimt starfsemi hratt.
Þróun evrópsks regluverks endurspeglar þessa breytingu vel. Stafrænt regluverk ESB, m.a. NIS2, DORA og CER, gerir auknar kröfur til áhættustýringar upplýsinga- og fjarskiptatækniáhættu, öryggis upplýsinga- og fjarskiptakerfa hjá mikilvægum innviðum og ábyrgðar stjórnenda.
Á sama tíma má sjá sambærilega þróun í regluverki um gervigreind, þar sem áhættan sem fylgir notkun tækninnar ræður í auknum mæli hvaða kröfur eru gerðar. Innleiðing flókinna hugtaka úr stafsetningarsúpu regluverks ESB er þó ekki markmið í sjálfu sér. Markmiðið er getan til að halda nauðsynlegri og mikilvægri starfsemi gangandi þrátt fyrir árás, bilun eða annað áfall.
Netöryggi verður ekki leyst í einangruðum verkefnum einstakra aðila eins og öryggisstjóra. Árangursrík efling net- og upplýsingaöryggisvarna þarf að tengja saman stjórnarhætti, áhættustýringu, skipulagslegar og tæknilegar varnir, innra eftirlit og lögfræðileg álitaefni. Þannig geta stjórnendur betur metið hvaða þjónustu þarf að verja fyrst, hvernig, hvar ábyrgðin liggur og hvernig takmörkuðum fjármunum er best varið.
Ákvarðanir um netöryggi snerta því ekki aðeins tæknimál heldur rekstur, fjárfestingar og þjónustu við viðskiptavini. Þegar alvarlegur veikleiki kemur í ljós geta stjórnendur þurft að velja á milli þess að halda þjónustu gangandi og taka kerfi tímabundið úr umferð til að draga úr áhættu. Raunverulegur mælikvarði á netöryggi er hvort stjórnendur viti hvað skiptir mestu máli fyrir reksturinn, geti tekið ákvarðanir undir álagi og tryggt að sú þjónusta sem viðskiptavinir og samfélagið treysta á haldist gangandi.
Ógnir þróast, tæknin breytist, fyrirtæki innleiða ný kerfi og verða háð nýjum þjónustuaðilum. Netöryggisvarnir, áhættustýring og innra eftirlit þurfa að þróast í sama takti. Framangreindar breytingar og breytt ógnarlandslag gera því þverfaglega nálgun í netöryggismálum nauðsynlega. Gervigreind er gott dæmi. Hún getur styrkt getu fyrirtækja til að greina ógnir og bregðast hraðar við þeim. Á sama tíma fylgja notkun hennar nýjar spurningar um trúnað, gögn, aðgangsstýringar, eftirlit og ábyrgð og því kemur ekki á óvart að gervigreind, öryggi gervigreindarlausna og gervigreindarárásir hafi að mati stjórnenda hvað mest áhrif á netöryggismál og gagnaöryggi fyrirtækja.
Þegar tæknilausnir, kerfi, starfsfólk og birgjar eru samtengd rekstrinum getur veikleiki á einum stað orðið áhætta fyrir heildina. Upplýsingaöryggisstjórar, sérfræðingar í áhættustýringu, lögfræðingar og stjórnendur geta því ekki unnið hver í sínu horni. Árásarmenn virða ekki skipurit og varnirnar mega ekki stjórnast af því heldur.
Ekkert fyrirtæki getur varið öll kerfi með sama hætti eða undirbúið sig gagnvart öllum mögulegum sviðsmyndum. Til að byggja upp raunverulegt rekstrarþol þarf að meta mikilvægi þjónustu og ferla og skilgreina hverju í rekstrinum verður að halda áfram þrátt fyrir alvarleg öryggisatvik. Hvaða kerfum, gögnum, ferlum og birgjum er mikilvægasta þjónusta okkar háð? Og hvað gerist ef einhver þessara þátta bregst?
Svörin gera stjórnendum kleift að forgangsraða vörnum og beina fjármagni og sérfræðiþekkingu þangað sem þær skipta mestu máli. Þau hjálpa einnig við að skilgreina hvaða starfsemi þarf að endurheimta fyrst og hversu hratt það þarf að gerast.
Nýjar reglur skapa mikilvægan ramma utan um eflingu netöryggisvarna. Þær setja fram kröfur um skýrari ábyrgð, áhættumat, skjalfestingu og eftirlit. En reglufylgni ein og sér tryggir ekki rekstrarþol.
Raunverulegt netöryggi kemur í ljós þegar eitthvað fer úrskeiðis. Vita stjórnendur hvaða ákvarðanir þarf að taka? Eru hlutverk og ábyrgð skýr? Hefur fyrirtækið prófað viðbrögð sín og getur það endurheimt mikilvæga starfsemi innan ásættanlegs tíma? Reglufylgni skiptir máli en raunverulegi mælikvarðinn á virkni netöryggisvarna er hvort fyrirtæki geti staðið af sér alvarleg netöryggisatvik og endurheimt raunverulega starfsemi.
Festumst ekki í skammstöfunum og hugtökum. Færum eignarhald á netöryggisáhættu til æðstu stjórnenda, brjótum niður síló og mælum árangurinn í raunverulegu rekstrarþoli en ekki einungis reglufylgni.
Í breyttu ógnarlandslagi snýst netöryggi ekki bara um að koma í veg fyrir netárásir. Það snýst um að vita hvað skiptir mestu máli og tryggja að starfsemi standist áfall þegar varnir bregðast. Spurningin er ekki aðeins hvort varnirnar geti brugðist, heldur hvað gerist í rekstrinum þegar þær gera það.