Viðamikil þekking á endurskoðun upplýsingakerfa og upplýsingaöryggis. Við erum vön að vinna með flókið samspil kerfa og gagnaflæðis þeirra á milli og nýtum þar tæknilausnir til að auka gæði vinnunnar.
Upplýsingatækniumhverfi fyrirtækja geta verið flókin og oft með sérsniðnum kerfum og hugbúnaði. Þar á milli verður til og flæðir gríðarlega mikið af gögnum.
Sérfræðingar okkar eru með mikla reynslu og hafa aflað sér ýmissar sérþekkingar, þ.m.t. gráður í endurskoðun upplýsingakerfa og upplýsingaöryggis (m.a. CISA, ISO27001 lead auditor). Við erum vön að vinna með flókið samspil kerfa og nýtum okkur tæknilegar lausnir í vinnunni.
Endurskoðun byggð á virkni eftirlitsaðgerða innan upplýsingatækniumhverfis
Endurskoðun okkar á upplýsingakerfum er samþættur hluti af endurskoðun reikningsskila og miðar að því að tryggja samræmi við metna áhættu í endurskoðun.
Byggt á greindum áhættum framkvæmum við prófanir á helstu eftirlitsþáttum í upplýsingakerfum, svo sem aðgangsstjórnun, auðkenningu notenda, breytingastjórnun og öðrum mikilvægum eftirlitsþáttum. Markmiðið er að meta hvort að viðeigandi eftirlit sé til staðar og sé virkt og stuðli þannig að verndun gagna og tryggi heilleika þeirra.