Fara í aðalefni

Endurskoðun

Endurskoðun sniðin að þínum þörfum

Í endurskoðunarvinnunni nýtum við það öfluga bakland og alþjóðlegu tengsl sem Deloitte hefur, auk þess að nýta tækni með skipulögðum og markvissum hætti til að auka skilvirkni og tryggja samræmi í vinnulagi.

Áhættumiðuð endurskoðun

Endurskoðun okkar byggir á endurskoðunaraðferðum og endurskoðunarkerfi sem þróað hefur verið hjá alþjóðafyrirtækinu Deloitte Touche Tohmatsu Limited og byggir á alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum (ISA).

Markmið okkar með endurskoðuninni er að:

  • Komast að rökstuddri niðurstöðu um áreiðanleika þeirra upplýsinga sem ársreikningur félagsins veitir
  • Gefa álit á hvort ársreikningurinn sé saminn í samræmi við ákvæði þeirra laga og reglna, sem um starfsemina gilda og viðeigandi reikningsskilastaðla
  • Gefa álit á hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu og efnahag félagsins
  • Vera stjórnendum innan handar um atriði sem betur mega fara varðandi bókhald, reikningsskil og innra eftirlit

Við nýtum tækni með skipulögðum og markvissum hætti til að auka skilvirkni í endurskoðunarvinnunni, tryggja samræmi í vinnulagi og veita tímanlegar og gagnlegar ábendingar til stjórnenda um hvað betur megi fara.

Markviss nálgun endurskoðunar byggir á ítarlegu áhættumati og víðtækum greiningum, þar sem unnið er út frá þekkingu á rekstrinum og því umhverfi sem fyrirtæki starfi inn.