If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Deloitte verður á Starfamessu Austurlands og býður gestum að kynnast fjölbreyttri starfsemi fyrirtækisins og þeim tækifærum sem þar er að finna. Starfsfólk Deloitte verður á staðnum og veitir innsýn í ólík fagsvið, verkefnin sem unnið er að og hvernig starfsumhverfið og menningin hjá Deloitte er. Þátttakendur fá tækifæri til að spjalla við starfsfólk og fræðast um mögulegar starfsleiðir innan fyrirtækisins.
Starfamessa Austurlands 2026 fer fram í Neskaupstað 24. september. Þar fá ungmenni tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og starfsgreinum á Austurlandi, hitta starfsfólk úr atvinnulífinu og fá innsýn í mögulegar náms- og starfsleiðir framtíðarinnar.
Nánari upplýsingar á vef Starfamessunnar - Starfamessa Austurlands 2026 | Austurbrú