If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Haustréttir SVÞ 2026 fara fram fimmtudaginn 8. október á Hilton Reykjavík. Yfirskrift viðburðarins í ár er Umbreytingar sem skila árangri – hvað virkar og hvað gerum við næst?
Haustréttir eru árlegur leiðtogafundur stjórnenda á vegum Samtaka verslunar og þjónustu. Að þessu sinni verður sjónum meðal annars beint að umbreytingum í rekstri, breyttri neytendahegðun og því hvernig fyrirtæki takast á við nýjan veruleika.
Fulltrúar úr atvinnulífinu og aðildarfélögum SVÞ taka þátt í pallborðsumræðum um hvað þurfi til svo fyrirtæki geti tekist á við breytingar, umbreytt rekstri og gripið tækifærin fram undan. Þar á meðal verður Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri Stjórnendaráðgjafar hjá Deloitte.
Nánari upplýsingar um Haustréttir SVÞ 2026 og dagskrá viðburðarins má finna á vef Samtaka verslunar og þjónustu.