If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur víða um land bjóða til fundarraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember 2026 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?
Fyrri hluti fundanna verða helgaðir erindum frá Samtökum ferðaþjónustunnar og markaðsstofum landsbyggðarinnar sem hverfast um ferðaþjónustu í viðkomandi kjördæmi.
Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte kynnir niðurstöður á greiningu sem unnað hafa verið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Seinni hluti fundanna verða vettvangur beinna samtala við þingmenn kjördæmanna um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.
Staðfundir fara fram á Selfossi, í Borgarnesi, á Akureyri og í Reykjavík en einnig er verður öllum fundunum streymt í beinni útsendingu á vef SAF.
Nánari upplýsingar og skráning (fyrir staðfundi) eru aðgengilegar á vef SAF.