Fara í aðalefni

Vel lukkaður Háskóladagur Deloitte

Ríflega 150 nemendur kíktu í heimsókn

Nú í septembermánuði tókum við fagnandi á móti ríflega 150 háskólanemum frá Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur á Háskóladegi Deloitte sem haldinn var í höfuðstöðvum okkar að Dalvegi 30. Þetta er í þriðja sinn sem við stöndum fyrir slíkum viðburði og hefur aðsókn nemenda aukist með hverju ári.

Boðið var upp á örkynningar frá starfsfólki þar sem þau veittu skemmtilega innsýn í starf sitt og verkefni hjá Deloitte, auk þess sem tíminn var vel nýttur í spjall og tengslamyndun yfir léttum veitingum.

Það er alltaf jafn gaman að fá að hitta áhugasama nemendur, búa til tengsl á milli náms og atvinnulífs og styðja þannig við næstu kynslóð sérfræðinga á leið þeirra út á vinnumarkaðinn.

Takk fyrir komuna og fyrir frábæra samverustund Mágus, Markaðsráð, Nörd, Pragma, Vélin og Ökonomía.

Glæsilegir sérfræðingar Deloitte sem fræddu nemendur um störf sín hjá félaginu.

Frá vinstri: Kristján Gunnarsson, Anton Valdimarsson, Rakel Reynisdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Björn Kristinn Jónsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Hlín Sigurðardóttir og Þorgrímur Goði Þorgrímsson