If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Um 60 galvaskir Deloitte'arar tóku þátt í Reykjavíkumaraþoni Íslandsbanka sem haldið var þann 22. ágúst síðastliðinn. Hlauparar völdu hver sína vegalengd og var hlaupið allt frá 3 km skemmtiskokki með börnunum yfir í 42 km heilt maraþon🏃
Deloitte hefur um árabil greitt fyrir þátttöku starfsfólks í maraþoninu sem liður í heilsustefnu félagsins. Sömuleiðis hefur starfsfólk komið sér saman um málefni til að styrkja og í ár hlupum við til styrktar Gló Reykjadals, vettvangur þar sem fötluð börn og ungmenni fá tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum tómstundum.
Að gefnu tilefni fengum við þær Bergljótu Borg, framkvæmdastjóra Gló, og Andreu Róa Sigurbjörns, forstöðumann Reykjadals, í heimsókn til okkar fyrr í mánuðinum. Þær sögðu okkur nánar frá því frábæra starfi sem fram fer í Reykjadal, sem og stóra verkefninu sem er efst á forgangslista félagsins um þessar mundir, að safna fyrir nýjum matsal, en eins og staðan er í dag mætir hann ekki þörfum gesta né almennum kröfum um aðgengi.
Við viljum nota tækifærið og hvetja öll til að kynna sér starfsemi Reykjadals og söfnun þeirra: Sumargjöfin í ár er nýr matsalur í Reykjadal
Hluti hópsins sem hljóp til styrktar Gló Reykjadal
Bergljót og Andrea Rói sögðu frá Gló og Reykjadal