If we have selected the wrong experience for you, please change it above.
Í júní síðastliðnum birti ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti í fimmta sinn lista yfir 40 stjórnendur, 40 ára yngri, sem spáð er frekari frama í íslensku viðskiptalífi. Þessu til viðbótar birti félagið lista yfir 20 vonarstjörnur, 10 konur og 10 karla, sem talið er að eigi eftir að láta til sín taka á næstu árum.
🟢 40/40 listinn 2026
🟢 Vonarstjörnur 2026
Í tengslum við birtingu listanna bauð Góð samskipti, í samstarfi við Deloitte, öllum á listunum til móttöku í höfuðstöðvum okkar. Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta, opnaði viðburðinn og Lovísa Finnbjörnsdóttir, forstjóri Deloitte á Íslandi, sagði nokkur orð. Þá fengum við að heyra stutta tölu frá nokkrum sem rötuðu á listann í ár.
Það er gaman að segja frá að Deloitte átti fulltrúa á listanum í ár, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi, og enn skemmtilegra er að starfsmaður frá Deloitte hefur verið á 40/40 listanum í öll fimm skiptin.
Virkilega ánægjuleg samverustund með þessum flotta hópi!
Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta
Glæsilegur hópur
Tengiliður við fjölmiðla:
María Skúladóttir
Markaðsstjóri | Director of Brand, Marketing and Communications
+354 892 7476
mskuladottir@deloitte.is