Fara í aðalefni

Margrét Helga Guðmundsdóttir

Margrét hefur víðtæka þekkingu og reynslu af loftslags- og sjálfbærnimálum fyrirtækja. Hún hefur reynslu af sjálfbærniupplýsingagjöf, innleiðingu sjálfbærniregluverks, kolefnisútreikningum og staðfestingu ófjárhagslega upplýsinga. Hún hefur sérhæft sig í að aðstoða fyrirtæki við stefnumótun sjálfbærnimála og reglufylgni tengdu sjálfbærni- og umhverfismálum.

Margrét er með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu, MA gráðu í umhverfis- og auðlindafræði og BA gráðu í stjórnmálafræðu frá Háskóla Íslands. Hún starfaði sem sérfræðingur í ETS, skráningarkerfi með losunarheimildir og í eftirliti með mengandi starfsemi hjá Umhverfis- og orkustofnun á árunum 2013–2022.