Fara í aðalefni
Welcome to Deloitte

If we have selected the wrong experience for you, please change it above.

Frímann Snær Guðmundsson

Meðeigandi

Frímann er meðeigandi hjá Deloitte og hefur hann starfað hjá félaginu frá árinu 2015. Hann ber ábyrgð á þjónustu og ráðgjöf á sviði verðmata og líkanagerðar, auk þess að hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf og greiningum fyrir fyrirtæki í fjölmörgum atvinnugreinum, með sérhæfingu á sviði innviðaverkefna, orku- og veitumála, sjávarútvegs og fiskeldis sem og fasteignafélaga og tryggingamála.

Frímann er með M.Sc.-gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla, auk þess sem hann stundaði skiptinám við Oklahoma State University í Bandaríkjunum. Þá öðlaðist hann fjölbreytta og alþjóðlega reynslu hjá Deloitte í Danmörku á árunum 2016-2017 og hefur í framhaldinu unnið markvisst að auknu samstarfi Deloitte þvert á Norðurlöndin.