Skattadagur Deloitte 2013 |

Hinn árlegi Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins var haldinn að Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 10. janúar s.l.
Skattamál skipa sífellt stærri sess í efnahagsumhverfi okkar og var mikill áhugi fyrir fundinum nú sem endranær. Um 240 manns fjölmenntu á fundinn þar sem mörg áhugaverð erindi komu fram og nýlega skipaður fjármálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir, setti fundinn. Dagskrána má líta hér að neðan:
- Hagkvæm auðlindagjaldtaka - Daði Már Kristófersson, dósent við hagfræðideild Háskóla Íslands
- Skattar eða upptaka eigna? - Garðar Valdimarsson, hrl á skatta- og lögfræðisviði Deloitte
- Áhrif skattalagabreytinga á verðbréfafyrirtæki - Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Auðar Capital
- Áhrif tryggingagjalds á minni fyrirtæki - Sigurjón M. Egilsson, blaðamaður og útgefandi
- Helstu skattabreytingar og fundarstjórn: Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte
Erindi fundarins er hægt að nálgast hér að ofan á pdf formi, undir flipanum "vista viðhengi".
Hagkvæm auðlindagjaldtaka - Daði Már Kristófersson