Skattadagur Deloitte 2010 |

Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptablað Morgunblaðsins, var haldinn að Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 12. janúar 2010.
Skattamál eru í öndvegi þessa dagana og var gríðarlegur áhugi fyrir fundinum. Þurfti aukasal til að hýsa um 330 áhugasama gesti er hlýddu á fjármálaráðherra og fyrirlesara í erindum dagsins.
Margt áhugavert kom þar fram í kjölfar nýlegra skattabreytinga en annars var dagskrá skattadagsins eftirfarandi:
- Setning: Steingrímur J.Sigfússon, fjármálaráðherra
- Skattar eða skatttekjur? - Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
- Skattaleg mismunun - mismunandi skattlagning eftir rekstrarformum - Vala Valtýsdóttir, forstöðumaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte
- Efnahagskreppa og skattheimta - Ragnar Árnason, prófessor
- Breytt landslag - nýjar frádráttarreglur fyrirtækja - Gunnar Egill Egilsson, skatta- og lögfræðisviði Deloitte
- Fundarstjóri: Guðrún Hálfdánardóttir, aðstoðarfréttastjóri mbl.is
Glærur af fyrirlestrunum er hægt að nálgast hér að neðan á pdf formi.
Skattaleg mismunun - mismunandi skattlagning eftir rekstrarformum