Endurskoðunarnefndir 29.11.2012 |
Deloitte hélt morgunverðarfund fyrir stjórnir og endurskoðunarnefndir þann 29. nóvember s.l. þar sem Friðrik Már Baldursson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsnets og forseti viðskiptadeildar HR, fjallaði um reynslu sína af stjórnarsetu. Einnig fjallaði Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar hjá HR, um hlutverk stjórna og tilgang undirnefnda. Vel var mætt á fundinn og er hægt að nálgast erindi fyrirlesarana hér að ofan á pdf formi (sjá vista viðhengi).
Deloitte leitast við að fjalla um áhugaverð efni fyrir stjórnir og endurskoðunarnefndir, m.a. með morgunverðarfundum.
Ef þið hafið fyrirspurn eða vantar ráðgjöf varðandi þetta efni þá vinsamlegast hafið samband í síma 580-3000 eða með tölvupósti.
Allar nánari upplýsingar veita: Lárus Finnbogason, endurskoðandi, larus.finnbogason@deloitte.is og Sif Einarsdóttir, endurskoðandi, seinarsdottir@deloitte.is
Reynsla af stjórnarsetu - Friðrik Már Baldursson